Geðheilsa Ungmenna á Íslandi

Almennar upplýsingar um nokkrar geðraskarnir
Þunglyndi á Íslandi.
•Á Íslandi þjást allt frá 10.000-15.000 mans af þunglyndi.
•Þunglyndi er mjög algengur sjúkdómur og hefur áhrif á um það bil 15-25% mans á heimsvísu.
•Þunglyndi byrjar oft snemma á ævini, eða um 18-30 ára aldurs.
•Þunglyndi tengist oft öðrum sjúkdómum, hvort sem það er kvíðaröskun eða einhver langvarandi líkamlegur sjúkdómur.
•Ísland er stærðsti notandi þunglyndislyfja í heiminum.
•Það getur reynst mjög erfitt að greina þunglyndi vegna þess að oft veit viðkomandi ekki að hann/hún er þunglynd, einnig er þunglyndi á lágu stigi oft ruglað saman við almennann vanlíða.
•Ef þunglyndið greinist ekki leiðir það til óþarfra þjáninga og viðvarandi röskunar á starfsgetu og lífsnautn. Þegar verst lætur getur þunglyndið stefnt lífi sjúklings í óefni, jafnvel sjálfsvígshættu.
•Þunglyndi hefur margvísleg einkenni, sem öll hafa í för með sér að draga úr lífsgleði og framtaki, lækka geðslag, hægja á hugsunum og atferli. Allt þetta dregur úr þreki einstaklings til að sinna daglegum skyldum, rækta fjölskyldu og vini.
Geðklofi á Íslandi.
•Geðklofi er geðrofssjúkdómur (m.a. tap á raunveruleikaskyni). Á Íslandi eru milli 800 til 1.500 manns haldnir geðklofa.
•Orsök eða orsakir geðklofa eru ekki þekktar, en líffræðilegar/erfðafræðilegar, sálfræðilegar og félagslegar aðstæður skipta máli í framvindu sjúkdómsins.
•Ef einhverjir aðrir í fjölskyldunni eru haldnir geðklofa er aukin hætta á að sjúkdómurinn komi fram. Ef annað foreldrið, bróðir eða systir þjáist af geðklofa aukast líkurnar um 10% á móti u.þ.b. einu prósenti ef enginn í fjölskyldunni er með geðklofa.
•Geðklofa geta fylgt alskonar einkenni, hér eru nokkur dæmi:
•Ofskynjanir/skynvillur Heyrnarofskynjanir eru algengar. Raddir heyrast þó aðrir séu hvergi nærri. Einnig getur manni heyrst eins og einhver sé að banka á hurð, eða aðrar svipaðar ofheyrnir.
•Ranghugmyndir/ímyndaðar ofsóknir Ranghugmyndir eru „einka“-hugmyndir sem aðrir deila ekki með manni og ekki er hægt að hrekja. Oft er um að ræða ofsóknar- eða mikilmennskuhugmyndir. Til dæmis, fólk getur haldið að það sé stanslaust verið að fylgjast með því eða að það geti stjórnað heiminum.
•Breyttar hugmyndir um líkamann Sumir fá á tilfinninguna að líkaminn breytist. Manni getur fundist sem höfuðið sé að detta af búknum, skeggið hafi breyst í fiður eða líkaminn sé að leysast upp. Allt slíkt er mjög sársaukafull upplifun.
•Tilfinningar dofna Oft missa menn hæfileikann til að gleðjast og þeir eiga erfiðara með að láta tilfinningar í ljós en áður.
•Menn draga sig í hlé Einangrun og samskiptaleysi við aðra eru áberandi. Erfiðleikar í félagslegum samskiptum eru algeng.
•Meðferð geðklofa aðalega fer fram með lyfjameðferð og viðtalsmeðferð.
•Lyfjameðferð við geðklofa felst í lyfjagjöf sem dempar eða eyðir einkennunum. Geðlyf hafa áhrif á boðefnamyndun í heila þannig að hún fari í eðlilegt horf.
•Aukaverkanir vegna lyfjameðferðar
Aukaverkanir geta komið upp í geðlyfjameðferð eins og við alla aðra lyfjagjöf en á seinustu árum hafa verið þróuð lyf sem hafa minni aukaverkanir í för með sér. Ekki finna allir fyrir aukaverkunum við meðferðina. Jafnframt er þess að geta að mismunandi lyf hafa mismunandi aukaverkanir.
•Algengustu aukaverkarnir eru: Skjálfti eða stífir vöðvar, Aukin þyngd, Mikil munnvatnsmyndun eða munnþurkur og Röskun á kynlífi.
•Samhliða lyfjameðferð er viðtalsmeðferð mikilvæg. Markmiðið með viðtölunum er að fá hjálp við að læra að lifa við geðklofa og þær takmarkanir sem sjúkdómurinn setur.
• Þjálfun í félagslegri færni getur farið fram á ýmsan hátt en þar snýst allt um að hjálpa viðkomandi að eiga samskipti við aðra. Margir eiga erfitt með þessi félagslegu samskipti.
• Fræðsla um geðræna sjúkdóma kallast sálfræðsla. Fræðslan fer oft fram í hópum þar sem aðstandendur koma saman og þeir sem haldnir eru geðklofa hittast og ræða saman.