top of page
practice_areas
our_vision
contact
ATTORNEYS

Niðurstöður úr könnun

36% af fólki sem tók könnunina sagðist vera karl kyns, 58% sögðust vera kvenkyns og 6% sögðust vera annað.

50% af fólki sem tók könnunina var á aldrinum 13-16 ára, 12% voru 17-20 ára, 4% voru á aldrinum 21-30 ára, 11% voru 31-40 ára, 17% voru 41-50 ára og 6% voru 51 ára og eldri.

Við tókum saman fyrstu 100 svörin sem við fengum í könnunini, hér eru niðurstöðurnar.

78% sögðust þekkja einhvern sem á við geðræn vandamál að stríða, 10% sögðust ekki gera það og 12% sögðust ekki vita það.

88% sögðust telja að mörg ungmenni ættu við geðræn vandamál að stríða, 8 sögðust ekki halda það og 4% sögðu annað, en þau svör voru aðalega bara mismunandi leiðir til að segja "já"

11% mans sem tóku könnunina sögðust hafa verið lögð inn á BUGL eða aðrar slíkar stofnarnir á meðan 89% sögðu nei.

Þegar við spurðum hvaða þættir fólk teldi að hefðu mest áhrif á geðheilsu unglinga og gáfum fólki færi á að svara mörgum val möguleikum, 74% sögðu fjölskyldu vandamál, 59% sögðu að félagsskapur hefði áhrif, 42% sögðu ADHD, 75% sögðu einelti, 71% sögðu áföll, 37% sögðu gen og 10% sögðu "annað".

Þegar við spurðum hvað fólk hélt að væri bestu úrræðin fyrir ungmenni með geðvandamál á Íslandi væru svöruðu 74% að maður ætti að leita sér hjálpar hjá sérfræðingum, 6% sögðu að það væri best að bóka herbergi á BUGL, 14% sögðu "Tala við vini/fjölskyldu og 7% svöruðu öðru.

Viðtöl

Hér er samansafn af viðtölum sem við tókum við fólk sem hefur verið lagt inn á BUGL eða slíkar stofnarnir og fólk sem vinnur fyrir slíkar stofnarnir.

Viðtal við Gísla Óskars um Gen og hvernig þau tengjast geðveiki

Viðtal við Gísla Óskars

Hvernig hafa gen áhrif á andlega heilsu fólks?: „Þetta er erfið spurning, ég hef sjálfur spurt líffræðistofnun háskólans að þessari spurningu, og þeir sögðu það við mig að þeir gætu ekki tengt gen við ákveðna hegðun eða neitt slíkt, til dæmis eins og það með samkyneigð eða slíkt sko, en svo er aftur á móti talað um það að til dæmis andlegir hvillar og geðveiki gangi í ættir en hvað er nákvæmlega sem stýrir þessu, ég hef ekki fengið neinar viðlíkjandi skýringar á því.“

 

Er eithvað arftengt í genum okkar sem hefur áhrif á geðheilsu okkar?: „sko eins og ég sagði þá er talað um að þetta sé í ákveðnum fjölskyldum en menn eru fyrst og fremst svona í sambandi við gena ransóknir þá eru þeir að skoða líkamlegu einkennin og sjúkdóma og annað slíkt, en ekki þessi andlegu einkenni, menn eru bara ekki komnir það lang.“

 

Hvernig myndir þú lýsa geðveiki eða geðklofa?: „ Ja, það er spurnig hvernig það er, það er ábyggilega breytilegt en það eru allavega einhverjar ranghugmyndir sem menn fá, menn geta verið að heyra hljóð eða raddir sem segja þeim að gera eithvað þótt enginn sé nálægt og annað slíkt, spurningin er, ja sumir telja að þetta sé að koma að handan, úr anda heiminum, en það er í raunini það sem menn sjá, menn sjá að hegðunin er ekki eins og er hjá fólki sem við köllum venjulegt.“

Lokaverkefni 2016

Arnar Freyr og Helgi Birkis

Á þessari vefsíðu má finna ýmsar upplýsingar um rannsókn sem við gerðum um geðheilsu ungmenna á Íslandi, við ákváðum að komast að því hver bestu úrræðin væru fyrir börn og unglinga á Íslandi sem eiga við geðræn vandamál að stríða. 

Úrræði fyrir börn og unglinga með geðraskarnir á Íslandi

Hvað gera foreldrar gert?

Ef þú ert foreldri sem á barn sem er mögulega með geðröskun (ógreind) ráðleggjum við þér að senda barnið í sálfræðilegt mat sem fyrst og bregðast svo við með viðeigandi hætti ef það kemur í ljós að barnið er með röskun.

En hvað ef barnið er nú þegar greint með geðröskun?

Ef barnið þitt er þegar greint með geðröskun og þú hefur ekki þegar fengið hjálp fyrir það ættirðu að hafa samband við geðlækni og reyna að fá hjálp heima við. Ef það hjálpar ekki og barninu líður ekkert betur er lítið hægt að gera annað en að senda það á stofnun eins og BUGL eða Stuðla. (athugið að þetta fer eftir hver gerðröskunin er, stundum er nóg að breyta eða auka lyfjaskammt barnsins.)

Hvernig veit ég hvaða stofnun er rétt fyrir barnið mitt?

Ef barnið þitt er virkur neitandi fíkniefna verður það með öllum líkindum sent á stuðla, ef ekki er líklegra að það fari á BUGL (Barna og Unglinga Geðdeil Landspítalans)

Hér eru nokkrar slóðir sem gætu veitt meiri hjálp eða svarað einhverjum spurningum sem hefur ekki þegar verið svarað á þessari vefsíðu:
Barnaverndarnefnd:

 http://www.bvs.is/almenningur/barnaverndarnefndir/listi-yfir-barnaverndarnefndir-/barnavernd-reykjavikur/

Landspítalinn (BUGL) : http://barnaspitali.is/bugl/
http://www.landspitali.is/?pageid=14092

Viðtal við einstakling sem hefur verið lagður/ lögð inn á BUGL

1. Hefur þú verið lagður/ lögð inn á BUGL eða aðra slíka stofnun? 
: Já.

2. Hvernig líturðu á heiminn?
: Líf.

3. Hvernig var reynsla þín af BUGL og starfsfólkinu þar?

: Hún var fín.

4. Fanst þér stofnunin vera undirmönnuð?

: Það er mikið af góðu fólki að vinna þarna.

5. Hvenær varstu lagður/ lögð inn á BUGL?

: Árið 2010 og 2014.

6. Finst þér það hafa hjálpað þér að fara á BUGL?

: Já, það gerði það.

bottom of page